Já þegar ég lít út um gluggann þá trúi ég því virkilega að það sé komið sumar... veðrið á það reyndar til að breytast á einni mínútu á Íslandi en ég er svo jákvæð alltaf og held í vonina. Ég er reyndar ekkert rosa sátt með svona gott veður akkurat núna... það er ekki hægt að sitja inni í sólinni og læra. Ég er búin með 3 próf af 5 og má eiginlega segja að miðað við frammistöðu vetrarins þá er mér búið að ganga framar vonum... engin 10 en ég verð sátt með 9,5
Ótrúlegt en satt þá er búið að vera ágætt að læra undir prófin... ég náttla er svo kærulaus og kann ekki að skipuleggja mig þannig að ég er búin að þurfa að vera alla nóttina uppi í skóla að læra og hef svo bara mætt beint í prófið kl.9. Í fyrranótt þá vorum við þarna hópur af góðu fólki að læra. Eyþór kallinn var svo sniðugur að taka með sér sæng og kodda þannig að þegar augnlokin voru farin að þyngjast þá skiptumst við á að leggja okkur í einn klukkutíma. Við fundum dýnur inni í einni stofunni og lögðum þær á gólfið þannig að þetta var bara voða kósý Ég reyndar var eitthvað steikt í prófinu og bara gleymdi einni ritgerðarspurnigu... HVERNIG ER ÞAÐ HÆGT?? Það átti að velja tvö ritgerðarefni af þremur en ég skrifaði bara um eitt. Ég meira að segja var bara að dúlla mér við að skrifa þessa einu ritgerð sem ég gerði því ég hafði nógan tíma, skrifaði 3x meira en allir. Jájá ég er ekki ljóshærð fyrir ekki neitt. Þetta reddast samt alveg... nú kemur það sér að góðum notum að vera í náðinni hjá kennurunum því kennarinn fann svo til með mér og sagði að svona væri bara eintómur klaufaskapur og gæti komið fyrir alla og ætlaði að redda þessu
Afmælishátíð Fylkis var síðustu helgi og tókst hún rosa vel. Íþróttasalurinn var MJÖG flott skreyttur og svo var 3ja rétta hlaðborð, skemmtiatriði og allt voða fínt. Ég meira að segja braut odd á oflæti mínu og mætti í kjól Þar sem var enn í prófum þá lét ég áfengið vera og fór bara snemma heim. Það var kannski líka bara ágætt því sumar vinkonur mínar drukku aðeins of mikið og varð rosa drama á staðnum En ég meina shit happens og ekkert við því að gera... fólk lærir bara af þessu
En annars hef ég ekki mikið að segja... fótboltatímabilið að byrja og bara eintóm gleði framundan Strákarnir eiga leik viku á undan okkur og ég veit að þegar ég mæti á leikinn hjá þeim á sunnudaginn þá finnst mér vera komið sumar. Elska sumrin... vinna, fótbolti, þjálfa og á völlinn.... gerist ekki mikið betra en það
En nú er ég hætt.... ætla að skella mér útá pall í sólbað
Ble ble Mary
Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.
Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.