Undur og stórmerki eru að gerast á þessari síður!!!! Það er komið nýtt blogg

Ég var á mínum "bloggrúnti" áðan, ég tók bara eftir því að það eru allir hættir að nenna þessu bloggi. Eina fólkið sem nennir þessu eru þeir sem eru í útlöndum og þeir sem eiga börn (eru með síður fyrir börnin semsagt) Er alveg ótrúlega ánægð með Sigrúnu hvað þær skvísurnar í Fraklandi eru búnar að vera duglegar að setja inn ferðasögur, hef oft skellt uppúr við að lesa um djammferðir, skólamál og fleira. Við hérna á klakanum höfum hins vegar ekki verið nógu duglegar að segja frá okkar málum
Heiða Lind fór til dæmis til Barcelona um daginn, hvar eru fréttirnar af því?? ´Við erum enn að bíða Heiða mín 
Annars eru allir bara á fullu í skólanum nema ég þessa dagna, í prófum eða nýbúin í prófum. Ég byrja svo í mínum skóla 7.jan og er orðin frekar spennt. Þetta verður örugglega gaman, en líka nokkuð strembið
Er að fara að byrja í Hraðbraut og ætla að klára þetta blessaða stúdentspróf
En nún er uppáhalds árstíminn minn byrjaður, ég bara ELSKA jólin og þessi jól eru auðvita alveg sérstök þar sem þetta eru fyrstu jólin hans Alexanders
Litla heimilið okkar er heldur betur orðið jólalegt, seríur í gluggum og á svölunum, jólaskraut um alla íbúð (meira segja á ískápnum) og jólalögin óma úr tölvunni
Í gær tók ég mig svo til og bakaði tvær sortir af smákökum og það hepnaðist nú bara mjög vel. En fyrir ykkur sem eruð ekki alveg að komast í nógu gott jólalag þá mæli ég með þessu myndbandi, það kemur mér sko alltaf í jólagírinn

Ef þetta sést ekki hér þá getð þið farið inn á þessa slóð
http://www.youtube.com/watch?v=995csL2wmRA
Jæja segi þetta gott í bili
Vona að þið hafið það gott yfir jólin, ég veit sko að ég ætla að gera það