Fjórar skvísur úr Árbænum;)

Skvísur úr Árbæ;)

12.12.2007 09:08:57 / Ásdís

Me I whant a hoola-hoop.......

Undur og stórmerki eru að gerast á þessari síður!!!! Það er komið nýtt blogg :) :)

Ég var á mínum "bloggrúnti" áðan, ég tók bara eftir því að það eru allir hættir að nenna þessu bloggi. Eina fólkið sem nennir þessu eru þeir sem eru í útlöndum og þeir sem eiga börn (eru með síður fyrir börnin semsagt) Er alveg ótrúlega ánægð með Sigrúnu hvað þær skvísurnar í Fraklandi eru búnar að vera duglegar að setja inn ferðasögur, hef oft skellt uppúr við að lesa um djammferðir, skólamál og fleira. Við hérna á klakanum höfum hins vegar ekki verið nógu duglegar að segja frá okkar málum :^) Heiða Lind fór til dæmis til Barcelona um daginn, hvar eru fréttirnar af því?? ´Við erum enn að bíða Heiða mín 8|

 Annars eru allir bara á fullu í skólanum nema ég þessa dagna, í prófum eða nýbúin í prófum. Ég byrja svo í mínum skóla 7.jan og er orðin frekar spennt. Þetta verður örugglega gaman, en líka nokkuð strembið8| Er að fara að byrja í Hraðbraut og ætla að klára þetta blessaða stúdentspróf:haha:

En nún er uppáhalds árstíminn minn byrjaður, ég bara ELSKA jólin og þessi jól eru auðvita alveg sérstök þar sem þetta eru fyrstu jólin hans Alexanders:haha: Litla heimilið okkar er heldur betur orðið jólalegt, seríur í gluggum og á svölunum, jólaskraut um alla íbúð (meira segja á ískápnum) og jólalögin óma úr tölvunni :) Í gær tók ég mig svo til og bakaði tvær sortir af smákökum og það hepnaðist nú bara mjög vel. En fyrir ykkur sem eruð ekki alveg að komast í nógu gott jólalag þá mæli ég með þessu myndbandi, það kemur mér sko alltaf í jólagírinn:haha:

 Ef þetta sést ekki hér þá getð þið farið inn á þessa slóð
http://www.youtube.com/watch?v=995csL2wmRA

Jæja segi þetta gott í bili:D Vona að þið hafið það gott yfir jólin, ég veit sko að ég ætla að gera það:haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2007 14:19:21 / Sigrún

Toulon

Bara láta vita að við stelpurnar erum komnar með blogg úti, slóðin er

www.toulon.bloggar.is

Allar að vera duglegar að kommenta svo maður nenni þessu;)

Annars er allt gott að frétta, búum á hóteli núna en erum að fara að skoða hús á eftir, vonum bara að það sé flott og fínt svo við getum flutt sem fyrst, helst bara í dag! Annars eru Frakkar svo rólegir í tíðinni að við búumst ekki við kraftaverki hjá þeim. Ég held að Íslendingar þurfi aðeins að læra að slaka á í lífinu, gera einn hlut í einu og hætta þessu stressi alltaf. Ætla að reyna að tileinka mér það frá Frökkum að SLAKA á;)

Kossar og knús úr SÓLINNI! Hér er geggjað veður....Planið um helgina er að gera nákvæmlega ekki NEITT nema liggja á ströndinni í sólbaði....sounds good?? ;)

Sigrún


» 0 hafa sagt sína skoðun

02.09.2007 13:45:19 / Sigrún

We're a live!!!

Úff, við erum alveg glataðar á þessari síðu! En verðum að reyna að virkja hana því það eru bara 21 dagur í að ég fari út og þá verð ég að reyna að vera dugleg að setja inn fréttir af mér og þið líka til að ég viti hvað er að gerast heima á klakanum á meðan ég er í burtu;)

Annars er voða lítið að frétta af manni þessa dagana, er bara að vinna á leikskólanum þangað til ég fer út og það er bara voða nice. Ég og María erum svo búnar að vera frekar duglegar að skella okkur á tjúttið, maður verður að sjálfsögðu að nýta tímann vel áður en ég fer út. J 

Það verður samt ljúft að komast burt í annað umhverfi, prófa e-ð nýtt og láta eins og vitleysingur í öðru landi! Planið er semsagt fyrir þá sem ekki vita....

Ég og Bryndís förum til Prag 23. sept, þar verðum við í 5 daga í heimsókn hjá Árný og Siggu og eru þær skutlur komnar með flotta íbúð og búnar að kanna alla helstu staði sem við eigum að skoða og svona, very niceJ Síðan liggur leiðin til Milano, en þar verður bara stutt stopp, eða í 2 daga...Flugið þangað kostaði nebbla skít og kanil en ef við hefðum flogið beint til Toulon þá hefði það kostað 30-40 þúsund þannig að við ákváðum bara að kíkja aðeins til Ítalíu, sem er ekki leiðinlegt. Þaðan tökum við svo lest til Toulon 30. sept. og mætum í skólann daginn eftir...vitum í rauninni voða lítið hvað við erum að fara út í, en það gerir þetta bara meira spennandi.Það verður gaman að sjá hvernig maður á eftir að spjara sig í landi þar sem fólk er ansi tregt til að tala ensku og ég kann auðvitað ekki stakt orð í frönsku :/ ...verð með orðabókina á lofti 24/7, hehe.

 

 

Well, hef þetta ekki lengra í bili...nú vil ég fá smá líf í þessa síðu okkar stelpur! ;)

 

-Sigrún


» 8 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 13:12:15 / Ásdís

hláturskast

hversu sætt barn á ég?? :haha: skoðið þetta

http://www.youtube.com/watch?v=rbPa51i9_TY

Sumarkveðja frá Ásdísi:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

04.07.2007 23:03:10 / Sigrún

Smá update úr sveitinni....

Já það er sko nóg að gera í sveitinni bæði í skólanum og svo er maður búinn að vera að bralla ýmislegt;) við stelpurnar erum búnar að vera á útinámskeiði og þar er tekið vel á því...í síðustu viku var svo farið í ALVÖRU fjallgöngu upp á Baulu og það er sko meira en að segja það. Baula er meira svona klettaklifur eða steinastökk og skriðuhrun og tvö skref upp, eitt skref niður á jafnvel ágætlega við líka;) ferðin tók 2 tíma upp og við vorum aðra 2 tíma á leiðinni aftur niður, núna getur maður sko sagt að maður sé orðinn sannur Bifrestingur:)

Ég er líka auðvitað búin að láta mig vaða fram af kletti sem er hérna við Hreðavatn og ofan í hyl og þar sem ég er mesti kjúlli í heimi og MJÖG lofthrædd þá er ég ekkert smá stolt af mér að hafa þorað þessu;)

Á morgun er þríþrautakeppni sem kallast Hroki og í það eru 3 saman í liði, við Támínurnar- ég Bryndís og Árný ætlum að sjálfsögðu að vera með en keppnin felst í því að hjóla rúma 3 km. hlaupa svo 2,5 km og synda 100m út í Hreðavatn takk fyrir;) brr....á bakkanum eftir sundið bíður svo baðsloppur og einn kaldur:) um kvöldið er svo ball á Hreddanum þannig að þetta verður án efa góður dagur á morgun og bara gaman að taka þátt.....

Þó að maður sé alveg að mygla stundum í skólanum þá er helvíti næs að vera búin fyrir hádegi þegar það er svona gott veður eins og það er búið að vera, þá getur maður skellt sér í göngutúr og pottinn:) bara ljúft....já, þið sem haldið að það sé ekki sæla í sveitinni hafið sko rangt fyrir ykkur, hehe.

Get ekki sett myndir í færsluna:( en það eru einhverjar myndir sem ég er búin að setja inn á: http://sigrun.myphotoalbum.com/

Knúsar...Sigrún


» 4 hafa sagt sína skoðun

19.06.2007 00:03:19 / Ásdís

Hæ hó og jibby jeijj og jibby jeijjj.......

Já 17.júní er búinn og sumarið er því alveg byrjað, það er nú líka bara búið að vera ágætis veður síðustu daga, allavega hér í mosó:) hehe
Helgin var rosa góð, við vorum með Lísu skvísu hjá okkur og það var sko fjör, fórum í skrúðgöngu á 17.júní, og vorum rosa fjölskylduleg, alveg æðislegt. Ég er orðinn svo mikill mosfellsbæingur að við fórum ekkert niðrí bæ, endu þurftum við þess ekkert. Það var rosa flott skrúðganga hér rétt hjá okkur sem endaði í Hlégarði og þar fyrir utan voru leiktæki og skemmtiatriði:haha: Bráðlega verður komin almenileg verslunarmiðstöð hér í mosó, ég fæ mér vinnu hérna og þá þarf maður ekkert að fara...hehe;) Ég er meira segja á fullu að vinna í að fá vinkonurnar hingað til mín. Ragga vinkona er flutt í sömu götu og við og svo er ég búin að finna íbúð handa maríönnu og það bara í blokkinni við hliðiná okkur, hversu gaman væri það??:) Svo fer ég smá saman að vinna í að fá hinar stelpurnar hingað líka, þetta kemur bara hægt og rólega....;)

Ég skellti mér á djammið um daginn. Ég, Elena og Hulda elduðum saman og fengum okkur smá í glas og kíktum svo í bæinn. Ég skemmti mér rosa vel, ætlaði nú að hitta Maríu og Sigrúnu en nennti ekki í röðina á vegó8| En við kíktum nú á nokkra staði Óliver, Barinn, Sólon og svo B5 sem ég hafði nú aldrei komið á. Ég verð að segja að ég er sko alveg að fíla þetta reykingarbann, mjög góð tilbreyting að labba inn á stað og það er bara nánast frískt loft þar inni, það var reyndar frekar heitt inni á Sólon og Óliver en þegar við löbbuðum inn á B5 var bara rosa ferskt og þægilegt, góður staður til að fara á ef maður er í stuði til að sytja með skemmtilegu fólki og spjalla og svona því tónlistin er ekki of há og það er ekki of mikið af fólki (eða var ekki þegar við vorum)

En annars verð ég bara að monta mig af stráknum mínum, hann er svo mikið æði, það er svoldið síðann hann byrjaði að hlægja aðeins en það hefur alltaf verið meira svona bara ánægjuskrík ef þið vitið hvað ég meina svo í kvöld þá sat hann hjá mér og ég var eitthvað að hlægja að honum og þá byrjaði minn bara að skelli hlægja og þá  er ég sko að tala um að það var alveg eins og hann væri bara í hláturskasti, þetta var það sætasta sem ég hef á ævi minni heyrt enda, hann kann sko alveg að bræða mömmu sína

En jæja krakkar mínir það er kominn háttartími hjá mér....Góða nótt:haha:


» 5 hafa sagt sína skoðun

05.06.2007 22:23:11 / Sigrún

úff skóli...

Já er ekki um að gera að koma með færslu þegar maður á að vera að gera verkefni í skólanum...að vera ennþá í skólanum núna er ómannlegt, enda er ég komin með nettan skólaleiða og er bara á 4 lotu af 7, ekki búin fyrr en í lok júlí:( það bætir ekki úr skák að vera í fáránlega erfiðu fagi núna, verðmati fyrirtækja...sit kófsveitt að reyna við mjög svo erfitt verkefni!!! úff...ég veit ég er að væla! verð bara að fá að gera það núna....hehehe

En hinsvegar, það sem heldur mér gangandi er að vita að ég er að fara til Frakklands í september... hugmyndin er að fljúga til Berlínar og vera þar í 1-2 daga og fara svo yfir til Prag að hitta Árný og Siggu sem verða í skóla þar:) skólinn okkar byrjar ekki fyrr en í byrjun okt. þannig að okkur langar að fara eitthvað annað fyrst:) ég get ekki beðið...Tíminn þangað til er reyndar ekkert gríðarlega spennó, skóli og svo bara vinna eins og brjálæðingur! núna verður maður líka að fara að byrja að vinna um helgar til að eiga einhverja peninga þegar maður fer út!!

 Já eins og ég segi þá er voða lítið að frétta af mér og þetta ansi tilgangslaus færsla...bara láta vita að ég er á lífi og þið eruð alltaf velkomin í heimsókn í sveitina og svo auðvitað til Frakklands í haust;)

Lofa að koma með skemmtó færslu næst, er bara í smá biturleikakasti hérna núna! hehe

Knús og kram...Sigrún skólasveitalubbi!!


» 5 hafa sagt sína skoðun

23.05.2007 09:12:16 / vinkonur

Afmælisbarn

Hún á ammæli í dag, hún á ammæli í dag, hún á ammæli hún Maríanna okkar, hún á ammæli í dag :haha::haha:

Jeijjjjjjj sæta, frábæra, æðislega fallega og ótrúlega skemmtilega vinkona okkar hún Maríanna Magnúsdóttir er 22 ára í dag. Við óskum henni til hamingju með daginn og vonum að þetta verði nú góður dagur. Við elskum þig ótrúlega mikið. Milljón knús og kossar:haha::haha:

Er svo ekki við hæfi að setja inn nokkrar myndir af ammælisbarninu í tilefni dagsins
  

     

 

Meiri knús og kossar :)


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 11:44:22 / María

Gleðilegt sumar

Já þegar ég lít út um gluggann þá trúi ég því virkilega að það sé komið sumar... veðrið á það reyndar til að breytast á einni mínútu á Íslandi en ég er svo jákvæð alltaf og held í vonina.  Ég er  reyndar ekkert rosa sátt með svona gott veður akkurat núna... það er ekki hægt að sitja inni í sólinni og læra.  Ég er búin með 3 próf af 5 og má eiginlega segja að miðað við frammistöðu vetrarins þá er mér búið að ganga framar vonum... engin 10 en ég verð sátt með 9,5:)

Ótrúlegt en satt þá er búið að vera ágætt að læra undir prófin... ég náttla er svo kærulaus og kann ekki að skipuleggja mig þannig að ég er búin að þurfa að vera alla nóttina uppi í skóla að læra og hef svo bara mætt beint í prófið kl.9.  Í fyrranótt þá vorum við þarna hópur af góðu fólki að læra. Eyþór kallinn var svo sniðugur að taka með sér sæng og kodda þannig að þegar augnlokin voru farin að þyngjast þá skiptumst við á að leggja okkur í einn klukkutíma. Við fundum dýnur inni í einni stofunni og lögðum þær á gólfið þannig að þetta var bara voða kósý:) Ég reyndar var eitthvað steikt í prófinu og bara gleymdi einni ritgerðarspurnigu... HVERNIG ER ÞAÐ HÆGT?? Það átti að velja tvö ritgerðarefni af þremur en ég skrifaði bara um eitt. Ég meira að segja var bara að dúlla mér við að skrifa þessa einu ritgerð sem ég gerði því ég hafði nógan tíma, skrifaði 3x meira en allir. Jájá ég er ekki ljóshærð fyrir ekki neitt.  Þetta reddast samt alveg... nú kemur það sér að góðum notum að vera í náðinni hjá kennurunum því kennarinn fann svo til með mér og sagði að svona væri bara eintómur klaufaskapur og gæti komið fyrir alla og ætlaði að redda þessu;) 

Afmælishátíð Fylkis var síðustu helgi og tókst hún rosa vel. Íþróttasalurinn var MJÖG flott skreyttur og svo var 3ja rétta hlaðborð, skemmtiatriði og allt voða fínt. Ég meira að segja braut odd á oflæti mínu og mætti í kjól:) Þar sem var enn í prófum þá lét ég áfengið vera og fór bara snemma heim. Það var kannski líka bara ágætt því sumar vinkonur mínar drukku aðeins of mikið og varð rosa drama á staðnum:) En ég meina shit happens og ekkert við því að gera... fólk lærir bara af þessu:)

En annars hef ég ekki mikið að segja... fótboltatímabilið að byrja og bara eintóm gleði framundan:) Strákarnir eiga leik viku á undan okkur og ég veit að þegar ég mæti á leikinn hjá þeim á sunnudaginn þá finnst mér vera komið sumar. Elska sumrin... vinna, fótbolti, þjálfa og á völlinn.... gerist ekki mikið betra en það:)

En nú er ég hætt.... ætla að skella mér útá pall í sólbað;)

Ble ble Mary;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

29.04.2007 08:28:53 / Ásdís

Allt er þegar þrennt er!! ;)

Jæja jæja jæja....nú er komið að því, þriðja færslan í röð frá mér!! Ég á skilið verðlaun fyrir að vera sú eina sem nennir að skrifa hérna...hehe ;) En ég bara gafst upp, þessi síða er alveg dauð, veit að það er nú búið að vera ansi mikið að gera hjá stelpunum í skólanum en það er nú éiginlega bara léleg afsökun, það tekur ekki það langann tíma að henda inn nokkrum línum.

En annars er voða lítið að frétta af mér, ég er bara í mömmuleik alla daga og líkar það sko mjög vel. Ég og Kári vorum að fjárfesta í bíl og erum sko komin í alvuru fjölskyldu "pakka" kayeotum okkur station bíl8|:haha: Það er ekkert smá mikill munur, miklu meira pláss og svo auðtvita aðal lúxusinn að hann er sjálfskiptur :) Á fimmtudaginn skellti ég mér svo á kaffihús!!! það var ekkert smá gott að komast aðeins út, er nú búin að fara aðeins frá alexander en ég held að það hafi aldrei verið mikið lengur en hálftími í einu. Ég kíkti á Sólon með Elenu og Huldu, fengum okkur að borða og spjölluðum og spjölluðum, Kári var bara heima með Alexander Óla og það gekk rosa vel, svo stelpur við getum farið að plana saumó eða kaffihúsaferð eða eitthvað sniðugt :)
Við fengum svo alveg rosa góðar fréttir í síðustu viku, erum að fá nýja nágranna í júní :haha: Ragga Bjarna og Sverrir kærastinn hennar voru að kaupa sér íbúð hérna hjá okkur í Klapparhlíðinni, þau fá hana afhenta í júní og ég get sko ekki beðið.Ekekrt smá gott að geta bara rölt á milli :) Annars er ég farin að hlakka rosa mikið til sumarsins, kíkja á laugarveginn í góða veðrinu, skellum okkur jafnvel í útilegu ef tengdó er til í að lána okkur tjaldvagninn :) Ég vona bara að það verði gott veður, veðurfræðingarnir eru allavega að lofa mér því ;)

Í lokinn verð ég svo aðeins að fá að monta mig, hún Anna Lilja systir mín var að gera verkefni í skólanum sínum þar sem þau áttu að taka myndir af andstæðum tilfinningum, það voru um 200 myndir sem kepptu svo um verðlaun og hópurinn hennar vann verðlaun fyriri bestu myndina og hver haldiði að hafi verið fyrirsætan???

Já þessi mynd var tákn um öryggi og vann verðlaun sem besta myndin:haha:

En jæja nóg af mér í bili, eins gott að þið stelpurnar fari að koma með eitt stykki blogg bráðum, annars segi ég upp hérna hehe ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 20:04:22 / Ásdís

geggjað glingur....

Hæ hæ

Er með smá auglýsingu hérna :haha:

Mín æðislega mágkona er komin með smá buissnes á netið. Hún og systir hennar eru að selja alls konar glingur í gegnum netið, þetta er á byrjunarstigi hjá þeim núna en samt sem áður eru þær komnar með fullt af flottu glingri, endilega skoðið þetta á www.123.is/glingur og svo eru þær líka að setja af stað myspace síðu www.myspace.com/glingur 

 

Kveðja Ásdís


» 12 hafa sagt sína skoðun

28.03.2007 16:55:51 / Ásdís

Mamman er mætt...

Já þið lásuð rétt....mamman er mætt aftur til leiks á þessa æðislegu bloggsíðu okkar :) Núna er maður í fullri vinnu við að blogga og henda inn myndum á síðunni hans Alexanders Óla en ég verð víst að standa mig hér líka, og hér með skal ég reyna að bæta mig :)

Annars er lífið bara frábært og ég hætti ekki að brosa. Ég á fullkomið barn, æðislegasta kærasta í heimi, frábæra fjölskyldu, bestu vinkonur í heimi, ótrúlega sæta og kósí íbúð og svo erum við að vinna í að kaupa nýjann bíl, hvað get ég beðið um meira.....ekki neitt:haha: Já við Kári ætlum að fara almenilega í þennann fjölskyldu pakka og kaupa okkur station bíl8|:haha:

Kári byrjaði aftur að vinna í síðustu viku, svo ég og Alexander erum bara búin að vera tvö heima á daginn síðan þá, reyndar er alltaf einhver gestgangur, sem er frábært og ég vona að allir haldi áfram að vera svona duglegir að koma til okkar :) Svo er ég líka farin að fara með hann út, hann sefur sko best í bílnum svo við erum búin að rúnta aðeins um og svona. Í dag var sex vikna skoðun og prinsinn dafnar sko vel, er orðinn 3610 gr og 55 cem. Læknirinn sagði að hann ætti mjög líklega eftir að verða hávaxinn eins og pabbi sinn. Já svo er Alexander farinn að brosa á fullu, brosti þvílíkt til læknisins en brosir samt mest þegar hann sér bangsann sinn

Borsmildur :)

En nóg um barnatal.....hehe....Ég verð að viðurkenna að ég var rosa svekt að missa af síðasta saumaklúbb hjá henni Beggu, hefði sko alveg verið til í að hitta ykkur allar og slúðra smá en ég bíð bara spennt eftir næsta saumaklúbb, veit einhver hver ætlar að halda og hvenar?? Svo fer kannski að líða að því að ég skelli mér á skrallið með ykkur skvísunum, veit að þið eruð allar mjög spennatar að sjá mig blindfulla....hehe;) ég er nú samt ekki að lofa mér í neitt skrall alveg strax.....en það fer svona að líða að því:$:haha:

En jæja látum þetta gott heita í bili....vona að einhver hafi nent að lesa þetta bull í mér

Kveðja Ásdís ofurmamma og Alexander Óli
                               


» 9 hafa sagt sína skoðun

19.03.2007 11:12:29 / María

Smile

Jájájá litli kútur Kárason er kominn með nafn...því miður var hann ekki skírður Maríus Bjarki eins og ég hefði viljað en hann fékk rosa flott nafn í staðinn. Hann heitir nú Alexander Óli... ég vill meina að seinna nafnið sé í höfuðið á mér ,, ólafsdóttir/ óli” SAME THING:D

Við óskum litla sæta vini okkar hjartanlega til hamingju með þetta fallega nafn:)

 

En útí aðra sálma... Sigrún kemur alltaf með svona leiðindafærslur þar sem hún er að segja frá því að hún sé að fara út til útlanda, Florida, Danmörk og bla bla...hún er lítið að hugsa um okkur greyin sem höngum á Íslandi í kuldanum. HAHAHA nú er komið að mér... ÉG ER AÐ FARA TIL PORTÚGAL Á LAUGARDAGINNJ yes thats right...er að fara út með fótboltanum, bæði mfl.kk og kvk... það á eftir að verða ansi skrautlegt held ég.:$ Við verðum því miður bara í viku en það er betra en ekkert.

 

Hey fyrir ykkur sem ekki vitið þá er ég hetja...eins og ég hef alltaf sagt þá er batnandi manni best að lifa og á það svo sannarlega við um mig og mitt hugrekki þessa dagana. Ég er nefnilega farin að spila, keyra og ég veit ekki hvað og hvað... verð örugglega búin að kaupa mér kött áður en langt um líður því ég er orðin svo brave... gefið mér samt nokkra daga til að vinna mig útúr kattarfóbíunni.:S

 

Shiiiiiit hvað ég hef ekkert að segja... það var bara ein manneskja sem skipaði mér að skrifa eitthvað því annars myndi hún hætta að kíkja á síðuna mína OG EKKI VILJUM VIÐ Í SMILE AÐ ÞESSUM ÖRFÁU AÐDÁENDUM OKKAR FÆKKI. Þessi unga dama er engin önnur en komandi herbergisfélagi minn úti á Portúgal, góð vinkona og hálfviti, Kolbrún Arnardóttir. Þessa færslu tileinka ég því henni.8) Það er víst ekkert grín að vera með henni í herbergi hef ég heyrt... hún er með þvílíkar reglur og vill ráða öllu. Svo það fyrsta sem hún sagði við mig þegar við ákváðum að vera saman í herbergi var ,, Hey María ef það er slaufa á herbergisdyrinni okkar þá kemuru EKKI inn, þú veist að strákarnir verða með okkur úti og ég ætla sko ekki að sóa tímanum”. Þrátt fyrir að vera stærri, feitari og frekari ákvað ég bara að samþykja þetta. Ég er samt búin að fá leyfi hjá Önnu og Ólu að fá að sofa hjá þeim ef kellan gerist ansi busy;)

 

Anyway...nenni ekki að skrifa meir, er farin að kenna... ég er klárlega besti kennarinn... ég og Margrét erum að kenna í 6. bekk Austurbæjarskóla og erum sko alveg að meika það. Krakkarnir spurðu okkur meira að segja um daginn afhverju við gætum ekki bara alltaf kennt þeim;)

Heyrðu já svo í lokin vil ég óska góðum vinum okkar þeim Bjarna og Bjössa til hamingju með afmælið...þeir félagar urðu 22 ára í síðustu viku...klöppum fyrir þeim:P

 

Ble ble Mary:!::!::!:

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.02.2007 15:14:14 / vinkonur

Fallegastur...

Jibbí loksins fáiði að sjá myndir af litla prinsinum okkar, nýjasta SMILE meðlimnum HANN ER GORGEOUS...

Ég er nýkominn í heiminn og það er svo margt sem ég á eftir að skoða...

Svoooo gott að lúlla:)

Æiiiiii það er svo gaman að vera til....

Ég er svo lítill ennþá að enginn föt passa á mig ennþá... en ég er rosa duglegur að drekka þannig að ég fer að passa í þetta allt:)

Þetta barn er náttúrulega það fallegasta í heimi...

Að lokum viljum við svo óska Ásdísi nýbakaðri móður til hamingju með afmælið í gær.... kjellan varð 22 ára;)

BLe í bili....


» 21 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 17:37:07 / María

Loksins loksins...

Yes yes yes loksins loksins kom að því.... Ásdís og Kári eignuðust lítinn prins í gærkvöldi... hann er 13 merkur og 49 cm... rosa myndalegur strákur:)

Ég var að koma ofan af spítala og guð minn góður hvað barnið er fallegt... ég hélt ég myndi deyja að halda á honum:) Ég tók fullt af myndum af honum á símann minn en því mipur þá kann ég ekki að setja þær hér inn.  En Ásdís á örugglega eftir að setja fullt af myndum hérna inn um leið og hún hefur tíma til;)

Innilega til hamingju með prinsinn elsku Ásdís og Kári, hann er ÆÐISLEGUR:)

F.h. smile María fósturmamma:)


» 13 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25